Aðalvalmynd

Smá breytingar......Homobasement

Örlitlar breytingar hafa orðið hvað varðar hitting hjá skipulagsnefnd. Fundarkvöld hefur verið fært fram um einn dag og verður því á miðvikudaginn. Ég vona að það henti öllum jafnvel og fimmtudagskvöldið.
Hvað segið þið um það stúlkur, komist þið ?


Áslaug kom með þá hugmynd um að baka pitsu sem þyrfti ekki að vera svo dýr....300-400 krónur á manninn. Eru þið til? Ég er allavegana til :)

Skipulagsnefndin er því:

Áslaug
Hjaltey
Íris
Guðrún Erna
Erla
Telma
Hildur

Er það ekki rétt hjá mér? Vona að ég sé ekki að gleyma neinum :)

knús knús.....

Hjaltey


Athugasemdir

1
áslaug skrifar:
HA!!! er ég fyrst til að blogga?hvað kemur til? ég fæ nefnilega sms þegar að ný færsla er skrifuð...þetta er satt!!!
miðvikudagur hentar mér eins og aðrir dagar enda heima flest kvöld...:) og já við Benni erum búin að redda smá varningi fyrir kvöldið mikla...samt ekki áfengi...hehe!

og já geðveik júróvisjón-auglýsingin með palla, hrís og hinsta dans...gat nú ekki annað en brosað:)

hilsen áslaug
03. maí 2007 klukkan 22:07
2
Hjaltey skrifar:
Haha.....:) snilld :) á eftir að sjá það!!!!
03. maí 2007 klukkan 22:48
3
Erla Dögg skrifar:
er rosa til í fund á miðvikudag og ennþá meira til í pítsur:)..
04. maí 2007 klukkan 19:06
4
Hjaltey skrifar:
Nett Erla......

....en það er alveg með ólíkindum hvað allir eru málglaðir hér á þessari síðu.....ertu ekki sammála mér Áslaug ??? HAHAHA
06. maí 2007 klukkan 23:46
5
áslaug skrifar:
var einmitt að reyna að komast að...loksins nær maður inn...:)
07. maí 2007 klukkan 12:57
6
Hjaltey skrifar:
Hér er hreinlega allt að verða vitlaust.....slagsmál um hverja lausa athugasemd :) eins gott að vera á tánum til að komast að hérna haha!!!
Er annars ekki allt fyrir að klárt og klappað fyrir átök laugardagsins, atriði að verða matreidd og búningahönnun í hámarki?! Eins gott að ekkert klikki annars lyftir Benni upp refsihöndinni og þá er ekki von á góðu ;) Sagan segir líka að yngsti meðilimurinn, B.K.B. - a.k.a. Brynja Katrín Bennadóttir sé að sjóða saman atriði ársins og stefni á verðlaunin ,,Nýstirni ársins" í flokki söng- og skemmtiatriða, þ.e.a a. segja ef háttatíminn leyfir!


ást og friður í próflestri.....pís át! Íris
07. maí 2007 klukkan 17:19
7
Íris skrifar:
djííííí loksins treð ég inn kommenti og geri það líka þetta laglega á Hjalteyjar nafni....damn´it woman!!
07. maí 2007 klukkan 17:45
8
Telman skrifar:
Hahaha þið eruð allar svo steiktar...jú þetta er allt að smella saman er þaggi? Vi ses pa onsdag....
08. maí 2007 klukkan 08:58

Skrifa athugasemd

Júrópartý

Auglýsing

Teljari