Aðalvalmynd

á morgun .....á morgun.....!!!Homobasement

Jæja......

Hittingur á morgun, miðvikudag, kl. 19:00 heima hjá Áslaugu.

Við ætlum að baka pitsu og narta í á meðan við kjöftum.....þannig að þær sem hafa áhuga leggja bara í púkk. Hver veit nema það verði svo keypt eitthvað smotterí í skál fyrir "sykursjúka" eins og mig.

En bara mæta með góða skapið, smá klink og hugmyndarflugið....

Telma, Erla Dögg, Hildur, Áslaug, Guðrún Erna og Íris.....hlakka til að hitta ykkur á morgun.

knús,

Hjaltey

Athugasemdir

1
Telma skrifar:
Jey jey ég hlakka svaka mikið til :D Ógisslega spennt....pjáng pjáng! :D Ég kem með klink...er góð í því að eiga til klink... :)
08. maí 2007 klukkan 20:44
2
Erla Dögg skrifar:
rosa stuð....mæti aðeins of seint..er nebbla að fara í massage klukkan 6-7..umm...hlakka til...´mæti svo fersk og útúr nudduð með klink í vasa...
en hvar áttu heima áslaug?..kannski betra að hafa það á hreinu.
síjútúmorró
Erla
08. maí 2007 klukkan 21:47
3
áslaug skrifar:
hihi já það væri betra að vita það...:)það er Lindasmári 35 í Kópavogi...þetta er sem sagt fyrir neðan smáralindina, þeir sem vita hvar Sprohúsið, Fífan og Smáraskóli er þá er þá beygið þið til vinstri til að fara þangað en í staðin fyrir að beygja þar beygið þið næstu beygju til hægri og keyrið upp götuna þar til að þið sjáið á hægri hönd blokkir sem koma í u þá á ég heima í löngu blokkinni sem er grængrá að neðan og bleik að ofan (voða fallegir litir RIGHT)...ef þið villist þá hringið þið bara :) svo á ég til með að rugla fólk í ríminu með leiðbeining þannig að það er ekki vitlaust að kíkja í símaskrána....

gæti orðið mikið um börn í kvöld....það er að segja er með eina litla í pössun og veit ekki alveg hvenær hún fer en það verður bara barnapartý í kvöld og fullorðins á laugardaginn:)

er orðin kreisí spennt...sí jú görls tú næt;)
09. maí 2007 klukkan 11:10
4
Árni Rúnar skrifar:
Voru teknar "stórar" ákvarðanir í gær??
10. maí 2007 klukkan 09:30

Skrifa athugasemd

Júrópartý

Auglýsing

Teljari